Use LEFT and RIGHT arrow keys to navigate between flashcards;
Use UP and DOWN arrow keys to flip the card;
H to show hint;
A reads text to speech;
51 Cards in this Set
- Front
- Back
Réttarfar |
Réttarfar er sú fræðigrein lögfræðinnar sem fjallar um réttarreglur varðandi dómstóla og meðferð mála fyrir dómi. |
|
Fullnustugerðir |
Aðfaragerðir, kyrrsetning og lögbann, nauðungarsala og gjaldþrotaskipti. |
|
Dómstólaskipan |
Á Íslandi eru tvö stig. Héraðsdómur (undirréttur) og Hæstiréttur. Héraðsdómur getur skotið dómum og úrskurðum til Hæstaréttar. |
|
Héraðsdómar |
Héraðsdómar eru 8 hér á landi og eru þeir kenndir við umdæmi sín.
|
|
Skilyrði ef þú vilt vera héraðsdómari |
Dómsmálaráðherra skipar héraðsdómara og skal hann m.a. uppfylla þau skilyrði að vera 30 ára, íslenskur ríkisborgari, hafa ekki gerst sekur um neitt refsivert athæfi eða verið úrskurðaður gjaldþrota. |
|
Hæstiréttur |
Hæstiréttur er æðsti dómstóll ríkisins og hefur aðsetur í Reykjavík, stofnaður 1919. Ekki er hægt að áfrýja dómum Hæstaréttar frekar. Þó er hægt að fá heimild til endurupptöku málsef sérstök ástæða þykir til þess |
|
Skilyrði ef þú vilt vera hæstaréttardómari |
Hæstiréttur skipar 9 dómara og verða þeir að hafa náð 35 ára aldri og vera íslenskur ríkisborgari sem hefur ekki gerst sekur um neitt refsivert athæfi eða bú hans verið tekið til gjaldþrotaskipta. |
|
Forseti Hæstaréttar |
Forseti Hæstaréttar sýnir starfsemi dómsins og skiptir niður verkum á milli dómra, ber ábyrgð á rekstri og fjárreiðum og kemur fram að hálfu dómsins út á við. Einn af handhöfum forsetavalds í fjarveru forseta Íslands. |
|
Sérdómstólar |
Sérdómstólar fara með þau mál ein sem sett lög fela þeim berum orðum. |
|
Landsdómur |
Landsdómur fer með og dæmir þau mál sem Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra, hefur aldrei verið kallaður saman. |
|
Félagsdómur |
Félagsdómur er sérdómstóll í vinnuréttarmálum. Í honum eiga sæti 5 dómarar, áhersla lögð á hraða málsferðar. Dómum verður ekki áfrýjað. |
|
Sakamál |
Sakamál eru þau mál sem handhafar ríkisvaldsins höfða á hendur mönnum til refsinga lögum samkvæmt. Öll önnur dómsmál teljast einkamál. |
|
Einkamál |
Einkamál: -Öll önnur mál en sakamál. Mál sem einstaklingur, félög eða lögaðilar höfða á hendur öðrum einstaklingum eða lögaðilum til úrlausnar á réttarágreiningi um ýmis konar réttindi og skyldur. |
|
Saksóknarar |
Saksóknarar eru óháðir embættismenn sem ákveða í opinberum málum hvort mál skuli höfðað. |
|
Málsforræðishyggja |
Málsforræðishyggja er ein helsta meginregla einkamálaréttarfarsins en samkvæmt henni eru það aðilarnir sjálfir, sem ýmist eru einstaklingar eða persónur að lögum (fyrirtæki, ehf..) sem ákveða hvaða kröfur skuli gerðar, hvaða gögn lögð fram og hvort á þeim er byggt, hvaða vitni verða leidd fram og svo framvegis. |
|
Stefna |
Stefna er nokkurs konar tilkynning til stefnda um málshöfðun og að málið verði tekið fyrir í héraðsdómi á tilteknum tíma. |
|
Stefnufrestur |
Stefnufrestur er sá tími sem stefndi hefur til að búa sig undir að koma fyrir dóm. |
|
Þingfesting |
Þingfesting er upphaf meðferðar máls fyrir dómstólum og þá hefjast venjulega fyrstu samskipti dómara og aðila. |
|
Útivistardómur |
Ef að stefndi mætir ekki við þingfestingu þá má hann búast við að útivistadómur gangi í málinu. Það þýðir að málið er dæmt eftir kröfum stefnanda. |
|
Málflutningahæfi og leiðbeiningarskylda dómara |
Ef að sá sem flytur málið er ólöglærður hvílir leiðbeiningarskylda á dómara. |
|
Sönnun |
Sönnun merkir í daglegu tali að leiða rétt og nægileg rök að staðhæfingu. |
|
Helstu sönnunargögn |
Aðildaskýrslur: skýrslur sem aðilarnir sjálfir gefa fyrir dóminum. Vitnaskýrslur Skoðunar- og matsgerðir: frá sérfróðum mönnum sem fengnir eru til að meta það sem deilt var um. Skjöl og önnur sönnunargögn. Lögregluskýrslur
|
|
Hugtakið sönnun |
Sönnun: Í dómsmáli telst staðhæfing sönnuð þegar svo góð rök hafa verið leidd að henni og dómari hlýtur að líta svo á, eftir heilbrigðri skynsemi og mannlegri reynslu, að hún sé rétt. |
|
Afbrigðileg málsmeðferð |
Afbrigðileg málsmeðferð: Nokkur einkamál sæta afbrigðilegri meðferð, málsmeðferðin er að nokkru leyti önnur en hin venjulega. |
|
Gjafsókn |
Í gjafsókn felst það að kostnaður aðila að dómsmáli er greiddur úr ríkissjóði, að hluta til eða að öllu leyti. Bæði stefnandi og stefndi geta sótt um gjafsókn. |
|
Gertæki |
Gertæki eru slík brot að dómhöfum og öðrum eigendum þvinga skuldara til efnda og slík brot geta varðað refsingu |
|
Fullnustugerðir |
Aðfaragerðir, kyrrsetning og lögbann eru þvingunarráðstafanir sem stjórnvöld beita til að knýja fram eða tryggja efndir á skyldum sem á mönnum hvíla eða til varnar gegn ólögmætu atferli. Þessar gerðir eru oft kallaðar fullnustugerðir. |
|
Aðfaragerðir |
Aðfaragerðir: hægt er að skoða með aðstoð sýslumanna að fá fullnægt skyldum manna, sem viðkomandi getur ekki eða vill ekki efna sjálfviljugur. |
|
(Aðfaragerðir) með fjarnámi |
Með fjárnámi er knúin fram skylda til peningagreiðslu. |
|
(Aðfaragerðir) útburðargerð |
Útburðargerð nefnist það þegar aðfaraheimild kveður á um skyldu gerðarþola til að víkja af fasteign eða að láta gerðarbeiðanda af hendi umráð hennar eða fjarlægja hluti af henni. |
|
(Aðfaragerðir) innsetningaraðferð |
Innsetningaraðferð nefnist það þegar aðfaraheimild kveður á um skyldu gerðarþola til að veita gerðarbeiðanda umráð lausafjár eða annarra hluta en eignarheimild yfir fasteign. |
|
Aðfaraheimildir |
Með aðfaraheimild er átt við hvernig kröfu þurfi að vera háttað til þessa að henni verði fullnægt með aðfaragerð (aðför). Helstu aðfaraheimildir má finna á bls. 19 í glósum og bls. 40 í bók. |
|
Fjarnám |
Fjarnám er algengasta aðfaragerðin en þá er knúin fram skylda til peningagreiðslu. |
|
Beinar aðfaragerðir |
Beinar aðfaragerðir eru útburðar- og innsetningargerðir án undangengins dóms eða réttarsáttar. |
|
Bráðabirgðaaðgerðir |
Bráðabirgðaaðgerðir: þá er átt við aðgerðir til bráðabirgða og er gripið til þessara úrræða ef hætta þykir á að athöfn raski með ólögmætum hætti re´tti gerðarbeiðanda, meðan leitar er úrlausna dómstóla. |
|
Kyrrsetning |
Í kyrrsetningu felst að sýslumaður tekur veð til bráðabirgða í eignum skuldara að kröfu skuldareiganda í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að skuldari geti ráðstafað þeim áður en dómur fæst um kröfuna og hægt er að gera fjarnám í eignum. |
|
Lögbann |
Markmið lögbanns er að stöðva eða fyrirbyggja með skjótum hætti tilteknar athafnir einstaklings eða lögaðila sem raska eða eru líklegar til að raska lögvörðum rétti manns á meðan beðið er dóms. |
|
Löggeymsla |
Löggeymsla er skyld kyrrsetningargerð, en sú aðgerð miðar að því að leggja hald á eignir skuldara þegar áfrýjun máls til Hæstaréttar kemur í veg fyrir að gerðarbeiðandi geti gert fjarnám í eigum gerðarþola á meðan beðið er eftir dómi. |
|
Nauðungarsala |
Nauðungarsala fer fram til að koma eign í verð án tillits til vilja eiganda hennar í þeim tilgangi að verja andvirðinu til greiðslu handa þeim sem eiga veðrétt í eigninni. |
|
Ógjaldfær |
Þegar skuldari getur ekki greitt gjaldfallnar skuldi sínar telst hann ógjaldfær. |
|
Greiðslustöðvun |
Greiðslustöðvun er þegar skuldari sem á í verulegum greiðsluerfiðleikum og vill freista þess að koma nýrri skipan á fjármál sín með aðstoð lögmanns eða löggilts endurskoðanda og vill tímabundna greiðslustöðvun. |
|
Nauðasamningur |
Nauðasamningur á það sammerkt með greiðslustöðvun að markmið hans er að ráða bót á ógjaldfærni skuldarans, án þess að til gjaldþrotaskipta komi. |
|
Gjaldþrot |
Með hugtakinu gjaldþrot er átt við vangetu skuldara til að standa kröfuhöfum skil á gjaldföllnum kröfum. |
|
Gjaldþrotaskipti |
Gjaldþrotaskipti er hinsvegar fullnustugerð, þ.e. aðferð sem notuð er til að skipta eignum þrotamanns á milli kröfuhafa hans. |
|
Þrotabú |
Þrotabú verður til þegar manneskja er dæmd gjaldþrota, lýtur stjórn skiptastjóra. |
|
Sakamál |
Sakamál eru öll þau mál sem handhafar ríkisvaldsins, ákæruvaldið, höfða á hendur mönnum til refsingar, lögum samkvæmt. |
|
Ákæruvaldið |
Ákæruvaldið: hlutverk ákærenda er að tryggja í samvinnu við lögreglu að þeir sem afbrot fremja verði beittir lögmæltum viðurlögum. |
|
Héraðssaksóknari |
Héraðssaksóknari höfðar sakamál vegna alverlegra afbrota eins og stórfelld fíkniefnabrot, manndráp, kynferðisbrota og fleira. |
|
Meðferð sakamáls |
Meðferð sakamáls má skipta í rannsókn, ákærustig og dómsmeðferð. |
|
Gerðardómur |
Gerðardómur er lögbundinn eða samningsbundinn úrskurðaraðili á einkaréttarsviðinu um ágreining sem annars ætti að sæta úrlausn almennra dómstóla |
|
Lögbundnir gerðardómar |
Lögbundnir gerðardómar eru úrskurðaraðilar sem starfa samkvæmt ákvæðum í settum lögum. |